Bátaferðir

Fastar ferðir eru út í Drangey frá Sauðárkróki á tímabilinu 20. maí til 20. ágúst og eru farnar daglega kl.10:00. Hægt er að bæta við ferðum eftir þörfum og óskum. Í byrjun maí og eftir 20.ágúst eru ferðir eftir samkomulagi.

Sigling út í Drangey er ævintýri líkust enda er eyjan náttúruperla í miðjum Skagafirði. Eyjan er þverhníptur móbergsklettur um 180 metrar á hæð og býður því upp á frábært útsýni yfir allan fjörðinn.

Fuglalíf er fjölbreytt í Drangey þótt mest beri þar á svartfuglategundum, og er þar lundinn frægastur fugla.

Ferðin í Drangey tekur ca. 4.klst. með siglingu, göngu, leiðsögn, fuglaskoðun og oftar en ekki láta selir og hvalir sjá sig á leiðinni. Komdu og njóttu fallegrar náttúru og upplifðu Drangey í allri sinni dýrð.