Áhugavert útivistarsvæði

Tröllaskagi er gríðarmikið fjalllendi, allt að 120 km langt og 60 km breitt, milli Skagafjarðar og Eyjafjarðar. Tröllaskagi nýtur vaxandi vinsælda sem útivistarsvæði, bæði gangandi og ríðandi ferðamanna.Margir tindar á skaganum ná yfir 1200 m.y.s., en hæst er Kerling (1538 m). Nokkrir litlir jöklar eru einnig í fjöllum og dölum. Margar fornfrægar gönguleiðir eru yfir Tröllaskaga, s.s. Heljardalsheiði, Hjaltadalsheiði, Hólamannavegur, Svarfdælaleið og Tungnahryggsleið.

Hólaskóli, í samstarfi við fjölmarga aðila, hefur gefið út tvö útivistarkort í mælikvarða 1:50.000 af Tröllaskaga. Þar eru merktar inn bæði styttri og lengri leiðir, með ýtarlegum upplýsingum fyrir útivistarfólk.

Tröllaskagi að vetri

 

 





Í Landnámu er elsta heimild um hross á Íslandi, þar sem segir frá hryssunni Flugu sem Flugumýri heitir eftir?

Myndasafn / Pictures