Gaman fyrir stóra sem smáa

Á ferðalögum er mikilvægt að allir fái útrás fyrir barnið í sjálfum sér

 

Rólóar

Í Skagafirði eru margir mjög skemmtilegir róluvellir til að leika sér á. Þar fær barnið í okkur góða útrás við að príla, klifra og renna, eða vega salt og róla.

 

Seiðandi hafalda og svört sandfjara er einn besti leikvöllur sem náttúran býður uppá

 

Sandfjörur

Víða eru sandfjörur sem gaman er að leika saman í; byggja sandkastala, týna skeljar, fleyta kellingar og hlusta á ölduna leika ljúft við sandinn.

 

Fótbolti getur líka verið skemmtilegt fjölskyldusport 

Boltaleikir

Fjórir nýlegir sparkvellir með gervigrasi eru á Sauðárkróki, Hofsósi, Hólum og í Varmahlíð, þar sem gaman er að sparka bolta saman. Einnig eru víða í Skagafirði útivellir fyrir körfuboltaleiki.

 

  

Frískandi sundferðir og róandi heitir pottar eru ómissandi á ferðalögum

Sundlaugar

Sundlaugar og heitir pottar eru á Sauðárkróki, í Varmahlíð, á Hólum, Bakkaflöt, Steinsstöðum og Sólgörðum, en sundlaug er í byggingu á Hofsósi.

 

 

 

Það er gaman að renna saman fyrir fisk í fjörunni eða á bryggjunniDorg og veiði

Þú getur auðveldlega krækt í marhnút á bryggjunni og silung í fjörunni. Við Sauðárkrókshöfn eru björgunarvesti fyrir alla frítt til útláns.

 

 





Í Landnámu er elsta heimild um hross á Íslandi, þar sem segir frá hryssunni Flugu sem Flugumýri heitir eftir?

Myndasafn / Pictures