Komdu út að leika!

Í Skagafirði er margt hægt að gera í fríinu, sumar jafnt sem vetur, eins og sjá má á listanum hér til vinstri. Vinsælt er að heimsækja söfn og sögustaði, fara á útreiðatúr eða sjá hestasýningar. Víða er hægt að renna fyrir fisk, fara í gönguferðir í fallegri náttúru og slaka svo á í sundlaugum og heitum pottum á eftir. Fljótasigling á jökulánum eða sigling útí Drangey er upplifun sem seint gleymist, sem og að spila golf í góðra vina hópi. Á vorin er notalegt að sitja í kyrrð við spegilsléttan vantsflöt og fylgjast með tilhugalífi fuglanna; á veturna má renna sér á skíðum í Tindastólnum eða bregða sér á skauta. Kynntu þér fjölmarga valkosti afþreyingar og útivistar hér til hliðar eða hafðu samband við Upplýsingamiðstöðina í Varmahlíð og fáðu aðstoð við að gera skemmtilegt frí í Skagafirði ógleymanlegt!

Skagafjörður - Skemmtilegur í fríinu :)





Í Landnámu er elsta heimild um hross á Íslandi, þar sem segir frá hryssunni Flugu sem Flugumýri heitir eftir?

Myndasafn / Pictures