Fjölbreytt gisting er í boði vítt og breytt um Skagafjörð. Hægt er að dvelja á gistiheimilum eða í sveitagistingu, á hótelum eða tjaldsvæðum, í orlofshúsum eða fjallaskálum, svo dæmi séu tekin um valkostina. Einnig henta félagsheimilin vel fyrir ættarmót og aðra mannfagnaði, en oft eru ágæt tjaldsvæði við þau. Framboð gistirýmis í Skagafirði er milli sex og sjö hundruð rúm yfir sumarmánuðina, fyrir utan tjaldsvæði og félagsheimili. Smelltu á valkostina hér til vinstri til að finna gistingu við þitt hæfi.






